Um Unndísi

Unndís á sér fyrirmynd hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna um að skert starfsgeta sé inngild/viðurkennd á vinnustöðum.


Á Íslandi tók gildi nýtt örorkulífeyriskerfi þann 1. september 2025 og felur í sér meiri hvata til atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu.


Unndís hér á landi er stýrt af Vinnumálastofnun og lögð er áhersla samstarf við atvinnulífið til að skapa fleiri hlutastörf sem henta fjölbreyttri starfsgetu.


Markmið Unndísar er að styðja við fyrirtæki og stofnanir með ráðgjöf, fræðslu og eftirfylgd svo að fjölgun hlutastarfa verði að veruleika.


Hér má lesa nánar um verkefnið: UN Disability Inclusion Strategy


(UNDIS - United Nations Disability Inclusion Strategy).





Unndís í fjölmiðlum, kynningarstarf, spilastokkur...

Framkvæmd stöðumats með matskvarða Unndísar á öllum þáttum vinnustaðar sem styðja við atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu.


  • Rýni jafnréttisáætlunar með tilliti til inngildingar.


  • Rýni á tækifæri vinnustaðar til fjölgunar hlutastarfa.


  • Gerð aðgerðaáætlunar sem miðar að ráðningum í hlutastörf.


  • Endurmat með reglubundnum hætti.

Stuðningur Vinnumálastofnunar

Mat á stöðu inngildingar vinnustaðarins með matstæki Unndísar.


Ráðgjöf við að rýna tækifæri til hlutastarfa innan stofnunarinnar eða fyrirtækisins.


Fræðslu um viðeigandi aðlögun á vinnustað.

Stuðning við ráðningu í störf og eftir atvikum eftirfylgd með ráðningu.


Stuðning við gerð tímaáætlunar og aðgerðaplans innleiðingar.


Mat á stefnu og árangri innleiðingar. (Inngilding fólks með mismikla starfsgetu skrifuð inn í jafnaréttisstefnu).


Endurgjöf og aðstoð við að ná betri árangri þar sem það á við.