Unndísarfyrirtæki
Unndísarfyrirtæki eru fyrirmyndarfyrirtæki sem hafa skapað atvinnutækifæri fyrir fólk með skerta starfsgetu.
Þátttaka atvinnulífsins við að fjölga hlutastörfum er gríðarlega mikilvæg fyrir samfélagið allt.
Þátttaka á vinnumarkaði skiptir okkur öll máli, eykur lífsgæði og skapar rými fyrir fjölbreytileikann sem býr í hverju samfélagi.
Ef fyrirtækið þitt eða stofnun vill bætast í hópinn, hafðu þá samband við okkur í gegnum netfangið unndis@vmst.is


Bakkinn
‚‚Hjá Bakkanum vöruhóteli trúum við að fjölbreyttur hópur starfsfólks geri okkur betri. Með því að skapa störf fyrir fólk með ólíkan bakgrunn og getu, byggjum við upp vinnustað sem endurspeglar samfélagið okkar og eflir bæði samkennd og nýsköpun. Það er okkur sannur heiður að vera Unndísarfyrirtæki."
Eva Guðrún Torfadóttir, Framkvæmdastjóri Bakkans

JYSK
‚‚Það eru öll velkomin til JYSK og við viljum gefa öllum tækifæri til að skína. Við höfum verið í samstarfi við Vinnumálastofnun í mörg ár og fengið marga góða starfskrafta þaðan. Sá sem hefur starfað hjá okkur lengst hefur verið hér í 22 ár. Við mælum svo sannarlega með Unndísarráðningum því á þessu græða allir."
Ásdís Hannesdóttir
Mannauðsstjóri JYSK

Hagkaup
‚‚Við höfum um árabil verið í virku og nánu samstarfi við Vinnumálastofnun. Samstarfið felur í sér að veita einstaklingum með skerta starfsgetu tækifæri til atvinnuþátttöku. Fjölbreytileiki í flóru starfsfólks okkar skapar sterkara starfsumhverfi og betri þjónustu. Það er okkur því bæði ljúft og skylt að vera Unndísarfyrirtæki um ókomna tíð.”
Sigurður Reynaldsson
Framkvæmdastjóri Hagkaups

Bónus
‚‚Við hjá Bónus höfum ráðið fólk með skerta starfsgetu í yfir 25 ár og þau hafa verið ómissandi hluti af okkar heild. Samstarfið hefur reynst okkur lærdómsríkt, aukið fjölbreytni í starfinu og fært okkur dýrmæta reynslu.”
Gunnur Sveinsdóttir
Mannauðsstjóri Bónus

Bakkinn
‚‚Hjá Bakkanum vöruhóteli trúum við að fjölbreyttur hópur starfsfólks geri okkur betri. Með því að skapa störf fyrir fólk með ólíkan bakgrunn og getu, byggjum við upp vinnustað sem endurspeglar samfélagið okkar og eflir bæði samkennd og nýsköpun. Það er okkur sannur heiður að vera Unndísarfyrirtæki."
Eva Guðrún Torfadóttir, Framkvæmdastjóri Bakkans

BYKO
‚‚Við hjá BYKO erum stolt af því að taka þátt í verkefni Vinnumálastofnunar. Það stuðlar að auknum fjölbreytileika á vinnumarkaði, eflir samfélagið og opnar dyr að raunverulegum tækifærum fyrir öll, óháð starfsgetu. Þessi áhersla fellur vel að stefnu og gildum BYKO um að skapa góða upplifun af BYKO sem vinnustað og styður við að við séum virkur þátttakandi í breytingarafli sem stuðlar að jafnara og fjölbreyttara samfélagi. Gerum þetta saman !‘‘

Gæðabakstur
‚‚Þátttaka Gæðabaksturs í atvinnu með stuðningi hefur reynst heillaspor fyrir fyrirtækið og allt starfsfólk. Við höfum fengið til okkar frábært starfsfólk sem hefur flest verið lengi hjá okkur og passar vel inn í starfsmannahópinn."
Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri